Mín dagskrábookmark
Ást og kærleikur - Gerður Guðjónsdóttir

Ást og kærleikur - Gerður Guðjónsdóttir

  • Myndlist
location_onHöfði, dvalar- og hjúkrunarheimili
  • calendar_todayFimmtudagur, 22. október · 17:00–17:00
  • calendar_todaySunnudagur, 25. október · 13:00–17:00

Myndlistarkonan Gerður Guðjónsdóttir sýnir verk sín á Hjúkrunarheimilinu Höfða. Í verkum sínum nýtir Gerður steina sem hún tínir í fjörunni við heimili sitt á Höfn í Hvalfjarðarsveit og breytir þeim í heillandi listaverk þar sem náttúran fær nýtt líf í gegnum sköpunina.

Gerður fæddist í Kópavogi árið 1970 en á ættir að rekja bæði í Borgarfjörð og á Ströndum. Hún ólst upp á Álftanesi þar sem fjaran, náttúran og útsýnið til Snæfellsjökuls vöktu snemma áhuga hennar á formum, litum og þeirri fegurð sem náttúran hefur upp á að bjóða. Síðar lá leið hennar til Akraness þar sem hún og eiginmaður hennar, Ásgrímur Gísli Ásgrímsson, bjuggu um árabil og ólu upp fjórar dætur. Þau hafa síðan fest rætur á Höfn í Hvalfjarðarsveit þar sem draumurinn um sveitalífið, kyrrðina og nálægðina við náttúruna rættist.

Á daglegum gönguferðum sínum um fjöruna safnar Gerður steinum sem verða efniviður í myndirnar hennar. Þema verkanna er ást og kærleikur og í hverri mynd leynist hjartalaga steinn sem tákn um það sem sameinar okkur og skiptir mestu máli í lífinu.