
Opni skólinn, List- og verkgreinar Grundaskóli
Opni skólinn einkennist af miklu frelsi, sveigjanleika og persónulegri aðlögun að þörfum nemenda.
Áhersla er lögð á frumkvæði, sjálfstæði, virkni, nemendamiðaða kennslu, samvinnu og samskipti, verkefnamiðað nám, þverfaglega nálgun, skapandi og gagnrýna hugsun.
List og verkgreinakennarar bjóða upp á brot af því besta í listgreinaálmunni á Vökudögum fyrir nemendur Grundaskóla og foreldra þeirra. „Megintilgangur með námi í list- og verkgreinum er að allir nemendur kynnist fjölbreyttum vinnuaðferðum þar sem reynir á verkkunnáttu, sköpunarkraft, margs konar tjáningarleiðir og samhæfingu huga, hjarta og handar. Þótt ýmislegt tengi list- og verkgreinar saman er einnig margt sem greinir þær að. Það sem sameinar er áhersla á verkkunnáttu, tækni, sköpun, fagurfræði og gildi, efnisþekkingu, líkamsbeitingu, túlkun og tjáningu.” (Aðalnámsskrá grunnskóla 21.1.)
Í Opna skólanum er leitast við að byggja á styrkleikum þátttakenda á hverju námskeiði með vellíðan allra að markmiði.
Þema: Náttúran og náttúruvernd
Hvað: Opni skólinn á Vökudögum
Hvar: List og verkgreinaálmu Grundaskóla
Hvenær: Mánudaginn 26. október kl. 16-17:30
Hver: Barn/börn í Grundaskóla og fjölskyldur
Hvaða list- og verkgreinar verða kenndar?
5 staðir í Opna skólanum á Vökudögum
- Rokksmiðja í tónlistarstofu
- Jóga og núvitund í leiklistarstofu
- Teiknikennsla í myndmenntastofu
- Endurnýting á efnivið tengd textíl í textílstofu
- Tálgun á ferskum við í smiðju
Takmarkaður fjöldi, fyrstur pantar fyrstur fær.
Aðgangur ókeypis en skráning nauðsynleg. Skráning í gegn um hlekk sem verður sendur forráðamönnum nemenda Grundaskóla í október.