Mín dagskrábookmark
Það sem augað mitt sér - Ljósmyndasýning Vallarsels (árg 2022)

Það sem augað mitt sér - Ljósmyndasýning Vallarsels (árg 2022)

calendar_todayFimmtudagur, 22. október · 18:00–20:00location_onTónlistarskólinn á Akranesi

Leikskólinn Vallarsel kynnir ljósmyndasýninguna „Það sem augað mitt sér“, þar sem börn í árgangi 2022 fá tækifæri til að sýna heiminn frá sínu sjónarhorni. Með myndavélina að vopni fanga þau það sem vekur forvitni þeirra, gleður þau og fangar athygli í daglegu umhverfi. Sýningin býður gestum að staldra við og sjá heiminn með augum barnsins; fullan af litum, smáatriðum og óvæntum uppgötvunum.