
Myndlist - Þorvaldur
Þorvaldur Arnar Guðmundsson er myndlistarmaður fæddur og uppalinn á Akranesi þar sem hann býr og starfar við listsköpun sína. Í verkum hans mætast áhrif úr japanskri myndasöguhefð, tölvuleikjum og eigin ímyndunarafli. Hann skapar kraftmikinn myndheim þar sem spennandi persónur, ofurhetjur og ævintýralegar frásagnir lifna við á striganum.
Þorvaldur hefur stundað nám við Myndlistaskólann í Reykjavík og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um land auk þess að halda nokkrar einkasýningar. Verk hans einkennast af leikgleði, sköpunarkrafti og sterkri sjónrænni frásögn sem höfðar jafnt til yngri sem eldri gesta.
Sýningin á Bókasafni Akraness veitir innsýn í fjölbreyttan og litríkann hugarheim listamanns sem hefur um árabil verið virkur þátttakandi í menningarlífi bæjarins.