Mín dagskrábookmark
Algleymi - Gróa Dagmar

Algleymi - Gróa Dagmar

  • Myndlist
location_onByggðasafnið í Görðum
  • calendar_todayFimmtudagur, 22. október · 18:00–21:00
  • calendar_todayFöstudagur, 23. október · 13:00–17:00
  • calendar_todayLaugardagur, 24. október · 13:00–17:00
  • calendar_todaySunnudagur, 25. október · 13:00–17:00
  • calendar_todayFöstudagur, 30. október · 13:00–17:00
  • calendar_todayLaugardagur, 31. október · 13:00–17:00
  • calendar_todaySunnudagur, 1. nóvember · 13:00–17:00

Verið velkomin á Algleymi.

Í einni andrá, þegar allt þagnar og við gleymum okkur sjálfum.

Algleymi er sýning um hina örstuttu stund þegar við finnum fyrir djúpri nærveru, vellíðan og alsælu. Stund sem birtist skyndilega, varir aðeins andartak og rennur svo aftur út í tímann.

Kannski felst fegurðin ekki í því að halda í stundina, heldur í því að hún líður hjá.

Ég hlakka til að taka á móti ykkur á sýningaropnun í sérsýningarrýminu Steypunni á 2. hæð í aðalsafnahúsi Byggðasafnsins á Akranesi þann 22. október kl. 18:00-21:00.

Sýningin verður eftir það opin á opnunartíma Byggðasafnsins til 1. nóvember 2026.